Fjármál og rekstur
Rekstarniðurstaða Hagstofu Íslands árið 2024 var neikvæð um 6,2 m.kr. Á árinu 2024 var ársvelta Hagstofunnar 2.036 m.kr., heildargjöld námu 2.043 m.kr. og eigið fé nam í árslok 105,5 m.kr.
Rekstrartekjur
Heildartekjur án fjármunatekna námu 2.036 m.kr. Framlag úr ríkissjóði minnkaði úr 1.736 m.kr. í 1.712 á milli ára eða um 24,5 milljónir króna sem nam 1,4%. Fjárfestingaframlag nam 24,6 m.kr. og tekjufærsla frestaðra tekna á afskriftum 17,4 m.kr.
Sértekjur Hagstofunnar námu 326 m.kr. sem er 9,6% aukning á milli ára en árið áður námu sértekjur 298 m.kr. Sértekjur ársins námu um 16% af heildartekjum.
Skipting sértekna
Þjónustusamningar 70 m.kr.
Seld þjónusta 141 m.kr.
Styrkir vegna samninga við Eurostat 94 m.kr.
Aðrar tekjur 21 m.kr.
Rekstrargjöld
Rekstrargjöld ársins námu 2.044 m.kr. með afskriftum og fjármagnsgjöldum og jukust um 16 m.kr. á milli ára eða um tæplega 1%. Stærsti útgjaldaliður Hagstofunnar var sem fyrr launakostnaður sem nam um 84% af rekstrargjöldum ársins og jókst um 10 m.kr. Húsnæðiskostnaður var annar stærsti útgjaldaliðurinn og nam hann um 7% af rekstrargjöldum.
Skipting gjalda
Laun, launatengd gjöld og starfsmannakostnaður 1.719 m.kr.
Annar rekstrarkostnaður 307 m.kr.
Afskriftir og niðurfærslur 17,4 m.kr.
Bókfærð eignakaup
Fjárfestingaframlag ársins var 24,6 m.kr. Eignakaup eru færð til eignar og afskrifuð yfir líftíma. Kaupverð varanlegra rekstrarfjármuna nam 22,2 m.kr. og afskriftir 17,4 m.kr.